
ÖLL ÞJÓNUSTA Á EINUM STAÐ
Heildræn stafræn markaðssetning á einu föstu verði
Stafræn markaðssetning virkar best þegar allir þættir vinna saman. Við setjum saman þá þjónustuþætti sem henta þínum rekstri — Google Ads, leitarvélabestun, samfélagsmiðla og mælingar — og rekum þá sem eina heild á föstu mánaðarverði.
Heildræn stafræn markaðssetning þýðir að auglýsingar, leitarvélabestun, efni og mælingar eru rekin sem ein heild í stað þess að hver þáttur sé keyptur sér. Hjá Black Flamingo eru þeir þjónustuþættir sem henta þínu fyrirtæki innifaldir í einu föstu mánaðarverði.
Flest fyrirtæki kaupa markaðsþjónustu í bútum: einn sér um Google Ads, annar um samfélagsmiðla og enginn um heildarmyndina. Það er dýrt og skilar sjaldan þeim árangri sem lagt var upp með.
Við vinnum öðruvísi. Eftir þarfagreiningu setjum við saman þá þjónustuþætti sem henta þínum rekstri, á einu föstu mánaðarverði, og látum þá vinna saman út frá markaðstrektinni — frá fyrstu kynnum að kaupákvörðun.
Leitarvélabestun (SEO)
Við komum vefsíðunni þinni ofar í leitarniðurstöðum Google — og í svör gervigreindarleitarvéla.
Skoða nánar →Google Ads og PPC
Greiddar auglýsingar sem skila mælanlegum árangri. Þú borgar fyrir smelli, ekki loforð.
Skoða nánar →Samfélagsmiðlar
Facebook og Instagram auglýsingar með nákvæmri markhópamiðun, ásamt umsjón með efni og samskiptum.
Skoða nánar →Staðbundin leitarvélabestun
Fyrir fyrirtæki með starfsstöð: efst í Google Maps og staðbundnum leitarniðurstöðum.
Skoða nánar →Efnismarkaðssetning
Efni sem svarar spurningum viðskiptavina þinna og byggir upp traust — og skilar umferð.
Skoða nánar →Tölvupóstmarkaðssetning
Vannýttasta tólið í markaðssetningu. Rétt notað skilar það hæstu arðseminni.
Skoða nánar →Greining og úttekt
Rétt uppsetning á tölfræði er grunnurinn að öllu öðru. Við tökum stöðuna og finnum sóknarfærin.
Skoða nánar →Stafræn ráðgjöf
Ráðgjöf fyrir fyrirtæki sem vilja byggja upp innanhúss þekkingu í stað þess að útvista öllu.
Skoða nánar →Algengar spurningar
Spurt og svarað um stafræna markaðssetningu
Hvað er innifalið í heildrænni þjónustu?
Þeir þjónustuþættir sem við teljum að skili þínu fyrirtæki mestu. Hjá einum er það Google Ads, leitarvélabestun og mælingar. Hjá öðrum samfélagsmiðlar, tölvupóstur og efni.
Við setjum saman pakkann eftir þarfagreiningu og hann breytist ef reksturinn breytist. Þú borgar ekki aukalega þótt við bætum við þætti sem þarf.
Get ég keypt einn þjónustuþátt í staðinn fyrir heildarpakka?
Já. Sum fyrirtæki byrja á einum þætti — oftast Google Ads eða leitarvélabestun — og bæta við þegar þau sjá árangur.
Við segjum þó hreint út þegar við teljum að einn þáttur einn og sér muni ekki skila því sem þú vonast eftir.
Hvað kostar stafræn markaðssetning á Íslandi?
Verð markaðsstofa á Íslandi er ýmist tímagjald, prósenta af auglýsingafé eða fast mánaðarverð. Við notum fast mánaðarverð svo þú vitir upphæðina fyrirfram.
Verðið ræðst af umfangi rekstursins og hversu margir þjónustuþættir eru í gangi. Þarfagreiningin er ókeypis og án skuldbindingar.
Hversu langan tíma tekur að sjá árangur?
Greiddar auglýsingar skila umferð frá fyrsta degi. Leitarvélabestun tekur þrjá til sex mánuði. Efni og tölvupóstur eru þar á milli.
Þess vegna keyrum við oftast rásir samhliða: eitthvað sem skilar strax og eitthvað sem byggist upp.
Byrjaðu hér ef þú veist hvað þig vantar

Veistu ekki hvaða þjónusta hentar þér?
Það er einmitt þess vegna sem við byrjum alltaf á þarfagreiningu. Hafðu samband og við förum yfir stöðuna með þér.

