Forsíða › Þjónusta › Efnismarkaðssetning

EFNISMARKAÐSSETNING

Efnismarkaðssetning sem selur, ekki bara fyllir síðuna

Efnismarkaðssetning (content marketing) byggir upp traust og skilar umferð úr leit. Við sníðum efnisstefnu að hverjum viðskiptavini, og reyndir textahöfundar okkar vita hvernig orð virka þegar markmiðið er sala.

Efnismarkaðssetning er að svara spurningum viðskiptavina þinna með efni í stað þess að auglýsa beint. Vel unnið efni skilar bæði umferð úr leit og trausti þegar kemur að kaupum.

Við byrjum á greiningu: hvað er markhópurinn þinn að leita að, hvaða spurningum er ósvarað í þínum geira og hvar liggja tækifærin sem enginn hefur nýtt. Út frá því byggjum við efnisáætlun sem þjónar bæði lesandanum og leitarvélunum.

Efnið er svo skrifað með það að markmiði að skila smellum, fyrirspurnum og sölu, ekki bara birtingum.

Greinar og fréttir

Efni sem upplýsir og fræðir, eykur virkni á miðlum og byggir upp trúverðugleika.

Árangurssögur

Ítarlegar úttektir á verkefnum með mælanlegum niðurstöðum sem sannfæra.

Efnisstefna

Heildstæð greining frá reyndum textahöfundum á því hvaða efni skilar þér mestu.

Viðtöl

Sérfræðisjónarmið sem staðsetja fyrirtækið þitt sem leiðandi rödd í geiranum.

Fréttatilkynningar

Fréttnæmar sögur af vörumerkinu dreift þangað sem þær skila umferð.

Ítarefni og skýrslur

Vandað efni sem eykur virkni og aflar þér tengiliða.

Svona virkar efnismarkaðssetning

Efni sem fólk leitar að

Efni sem svarar spurningum viðskiptavina

Bestu greinarnar svara spurningum sem viðskiptavinir þínir eru þegar að spyrja, til dæmis hvað þjónustan kostar, hvernig hún virkar eða hvernig á að velja á milli kosta. Slíkt efni dregur að fólk sem er að kynna sér málið og byggir upp traust áður en það hefur samband.

Ferlið

Við byrjum á leitarorðagreiningu og samtali við þig um hvað viðskiptavinirnir spyrja oftast um. Út frá því gerum við efnisáætlun fyrir næstu mánuði. Við skrifum efnið, þú ferð yfir það og samþykkir, og við birtum það og dreifum því á samfélagsmiðlum og í tölvupósti. Að lokum mælum við hvaða efni skilar heimsóknum og fyrirspurnum.

Efnismarkaðssetning og leitarvélabestun

Efni og leitarvélabestun vinna saman. Hver vönduð grein getur raðast fyrir fjölda leitarorða og styrkt þjónustusíðurnar með innri tenglum. Því meira gagnlegt efni sem vefurinn hefur um ákveðið svið, því líklegra er að Google treysti honum á því sviði.

Efni fyrir gervigreindarleit

ChatGPT og yfirlit gervigreindar í Google vitna helst í efni sem svarar spurningum beint og skýrt. Við skrifum þannig að svarið komi fyrst og útskýringin á eftir, sem nýtist bæði lesendum og gervigreind.

Algengar spurningar

Spurt og svarað um efnismarkaðssetningu

Hvað er efnismarkaðssetning?

Efnismarkaðssetning er að búa til efni sem svarar spurningum sem viðskiptavinir þínir eru raunverulega að spyrja, í stað þess að auglýsa beint.

Markmiðið er tvíþætt: að fólk finni þig í leit og að það treysti þér þegar það er tilbúið að kaupa.

Hversu oft þarf að birta nýtt efni?

Reglusemi skiptir meira máli en tíðni. Ein vönduð grein í mánuði sem svarar raunverulegri spurningu skilar meiru en fjórar þunnar.

Google refsar fyrir magn af innihaldslitlu efni, óháð því hver skrifaði það.

Til í efni sem gerir meira en að fylla dagatalið?

Fáðu þarfagreiningu og tilboð sniðið að þínu fyrirtæki, án skuldbindingar.