ForsíðaÞjónusta › Ókeypis þarfagreining

ÓKEYPIS ÞARFAGREINING

Ókeypis þarfagreining fyrir fyrirtækið þitt

Þarfagreining er stutt yfirferð þar sem við skoðum vefsíðuna þína og það sem þú ert að gera í markaðssetningu í dag, og segjum þér hvaða þjónustuþættir myndu skila þínu fyrirtæki mestu. Hún kostar ekkert og henni fylgir engin skuldbinding.

Við förum yfir leitarvélabestun vefsíðunnar þinnar og sendum þér forgangsraðaðan lista yfir það sem stendur helst í vegi fyrir betri stöðu í Google. Engin skuldbinding fylgir.

Við byrjum alltaf á þarfagreiningu áður en við nefnum verð. Ástæðan er einföld: það er ekki hægt að segja hvað fyrirtæki þarf fyrr en maður veit hvað það er þegar að gera og hvað það vill ná fram.

Þetta er raunveruleg yfirferð, ekki sjálfvirk skýrsla úr tóli. Við skoðum vefsíðuna, stöðuna í leit, hvaða rásir eru í gangi hjá þér og hvar götin eru. Út frá því forgangsröðum við.

Þú færð niðurstöðurnar sendar innan tveggja virkra daga. Engin skuldbinding fylgir — þú mátt nota þær sjálfur eða láta annan aðila vinna eftir þeim.

Staðan í leit

Hvar þú birtist í Google í dag og hvað stendur helst í vegi fyrir betri stöðu.

Rásirnar þínar

Hvað er í gangi hjá þér núna og hvaða rás vantar til að heildarmyndin gangi upp.

Mælingar

Hvort þú sért í raun að mæla það sem skiptir máli — eða að giska.

Samkeppnisstaða

Hverjir eru fyrir ofan þig og hvað þarf til að fara fram úr þeim.

Tækifærin fyrst

Hvað myndi skila mestu strax, miðað við þinn rekstur og þinn fjárhag.

Forgangsröðuð áætlun

Skýr listi yfir hvað á að gera fyrst, hvað má bíða og hvað á að sleppa.

Fáðu þarfagreininguna þína

Þú svarar fyrst þremur reitum. Greiningin sjálf er átta spurningar og tekur um tvær mínútur — þú færð svarið sent innan tveggja virkra daga.

Skref 1 af 2
T.d. www.fyrirtaekid.is — við skoðum síðuna áður en við svörum

Algengar spurningar

Spurt og svarað um þarfagreininguna

Er þarfagreiningin raunverulega ókeypis?

Já. Þú færð niðurstöðurnar sendar og mátt nota þær sjálfur eða láta annan aðila vinna eftir þeim.

Við gerum þetta vegna þess að fyrirtæki sem sjá stöðuna svart á hvítu taka oftar næsta skref. Það skref þarf ekki að vera með okkur.

Hvað fæ ég sent?

Forgangsraðaðan lista: hvaða þjónustuþættir myndu skila þér mestu, hvað má bíða og hvað er ekki þess virði að eltast við í þínum rekstri.

Skjalið er skrifað á mannamáli, ekki sjálfvirk skýrsla úr tóli.

Hvað tekur þetta langan tíma?

Formið tekur um þrjár mínútur að fylla út. Þú færð greininguna senda innan tveggja virkra daga.

Ef þú vilt frekar ræða þetta í síma máttu hringja beint í +354 763 4147.

Eða hringdu beint

Ef þér hentar betur að ræða þetta strax máttu hringja — við förum yfir stöðuna með þér í símanum.