STAFRÆN MARKAÐSSETNING FYRIR MINNI & MEÐALSTÓR FYRIRTÆKI

95% VIÐSKIPTAVINA OKKAR KJÓSA AÐ VERA ÁFRAM

Black Flamingo er markaðsstofa sem býður heildræna þjónustu í stafrænni markaðssetningu á Íslandi, Google Ads, Facebook og Instagram auglýsingar, leitarvélabestun (SEO) og mælaborð í rauntíma. Allt á föstu mánaðarverði, sniðnu að þínum rekstri.

20+

Yfir 20. ára samanlögð reynsla sérfræðinga okkar

Google Partner

Vottun síðan 2018

95%

varðveisluhlutfall viðskiptavina milli ára (retention rate of clients)

100%

gagnsæi og heiðarleiki

EKKI VISS HVAR Á AÐ BYRJA?

Fáðu ókeypis þarfagreiningu fyrst

Áður en við tölum um verð skoðum við vefsíðuna þína og stöðuna í markaðssetningu í dag. Svo bókum við þig á frían fund, í persónu eða á netinu, þar sem við förum yfir það sem við sáum og hvaða þjónustuþættir við teljum að henti þér best. Engin skuldbinding, ákvörðunin er alltaf þín.

Hvernig við verðleggjum

Eitt fast mánaðarverð.
Allt innifalið.

Í stað þess að tína saman lausa þjónustuþætti bjóðum við fast mánaðarlegt verð þar sem allir þjónustuþættir sem við teljum að henti þínu fyrirtæki eru innifaldir. Engin aukagjöld og engir óvæntir reikningar, bara skýr og heiðarleg samvinna.

  • Þarfagreining áður en við hefjumst handa
  • Sérsniðin þjónusta sem hentar þínum rekstri og markmiðum
  • Gagnadrifnar ákvarðanir, ekki bara pósta og sýnileika
  • Mánaðarlegir árangursfundir, allt útskýrt á mannamáli

Fast mánaðarverð · Sniðið að þér

Verðið ræðst af umfangi og þeim þjónustuþáttum sem henta best þínu fyrirtæki, aldrei staðlaður pakki sem passar ekki.

  • Rauntíma mælaborð þar sem allir miðlar eru tengdir
  • Vöktun og bestun mánaðarlega á öllum herferðum
  • Náin eftirfylgni og regluleg samskipti við þig og þitt starfsfólk

Þjónustan okkar

Allt sem þarf til að ná árangri í stafrænni markaðssetningu

Við hjá Black Flamingo erum sérfræðingar með yfir 20. ára reynslu, ein af örfáum markaðsstofum á Íslandi með Google Partner vottun.

Google Ads auglýsingar

Uppsetning og mánaðarlegar uppfærslur á herferðum, leitarorða- og markhópagreining, endurmarkaðssetning og vöktun mánaðarlega á öllum herferðum.

Lesa meira →

Facebook & Instagram auglýsingar

Afar nákvæm markhópamiðun (targeting) með tólum Meta, endurmarkaðssetningarherferðir, Meta pixel og mælingar (tracking) á sölum, bókunum og virkni.

Lesa meira →

Leitarvélabestun (SEO)

Úttekt og mánaðarleg aðgerðaráætlun til að skora hærra í Google, auk bestunar fyrir gervigreindarleitarvélar (AI search) á borð við ChatGPT og umsjón með Google My Business (Google Maps).

Lesa meira →

Google Analytics & tölfræði

Rýni og greining á tölfræði síðunnar, sóknartækifæri greind og uppsetning á atburðum (events), bókunum og mælingum (tracking) á umferð og virkni.

Lesa meira →

Innlendir miðlar

Umsjón auglýsingabirtinga á sviði útvarps, sjónvarps, prents, LED skilta og fleira, eftir þörfum og áhuga þíns fyrirtækis.

Lesa meira →

Mælaborð í rauntíma

Allir miðlar tengdir inn á eitt mælaborð sem þú færð aðgengi að, full yfirsýn og gagnsæi, alltaf uppfært í rauntíma.

Lesa meira →

ChatGPT auglýsingar

Nýr auglýsingamöguleiki sem er núna í boði á Íslandi. Við setjum upp og sjáum um birtingar inni í spjallinu sjálfu.

Lesa meira →

LinkedIn markaðssetning

Uppbygging á LinkedIn sem skilar viðskiptasamböndum, ekki bara „læk“. Fyrir B2B fyrirtæki sem vilja ná til réttra ákvarðanatakenda.

Lesa meira →

Tölvupóstmarkaðssetning

Vannýttasta tólið í markaðssetningu. Rétt notað skilar það hæstu arðseminni.

Lesa meira →

Hvernig við vinnum

Við hugsum fram í tímann

Markaðstrektin (marketing funnel) lýsir leið viðskiptavina frá fyrstu kynnum að kaupum: vitund, áhugi, löngun og kaupákvörðun. Við hjá Black Flamingo vinnum út frá þessu ferli og beinum auglýsingum að fólki á öllum stigum, til að byggja upp tengingu áður en kaupákvörðun er tekin.

Mánaðarlega hittumst við á árangursfundum þar sem farið er vel yfir stöðuna, næstu skref og allt útskýrt á mannamáli, ásamt sameiginlegri hugmyndavinnu þegar við á.

Gervigreind hjálpar okkur að sjá meira

Við notum gervigreind til að greina gögn og tölfræði hraðar og til að finna sóknarfæri sem annars færu framhjá okkur. En við sendum ekkert frá okkur sem enginn hjá okkur hefur lesið yfir.

Sérfræðingarnir okkar fara yfir niðurstöðurnar sjálfir og taka ákvarðanirnar út frá margra ára reynslu. Gervigreindin flýtir fyrir þeim, hún tekur ekki ákvarðanirnar.

VITUND
ÁHUGI
LÖNGUN
KAUPÁKVÖRÐUN

Algengar spurningar

Spurt og svarað um stafræna markaðssetningu

Hvað er stafræn markaðssetning?

Stafræn markaðssetning er markaðsstarf sem fer fram á netinu, til dæmis auglýsingar á Google, Facebook og Instagram, leitarvélabestun (SEO), tölvupóstsherferðir og greining á vefumferð. Markmiðið er að ná til réttra viðskiptavina á réttum tíma og breyta heimsóknum í sölur eða bókanir.

Hjá Black Flamingo er þetta unnið sem ein heildræn þjónusta: auglýsingar, SEO og tölfræðigreining vinna saman út frá markaðstrektinni (funnel), frá vitund yfir í kaupákvörðun.

Hvað kostar stafræn markaðssetning hjá Black Flamingo?

Við bjóðum fast mánaðarlegt verð þar sem allir þjónustuþættir sem við teljum að henti þínu fyrirtæki eru innifaldir. Engin aukagjöld og engir óvæntir reikningar. Verðið ræðst af umfangi og þörfum rekstursins, og byggir á þarfagreiningu sem við gerum áður en samstarf hefst. Hafðu samband og þú færð tilboð sniðið að þínu fyrirtæki.

Hvað er leitarvélabestun (SEO) og af hverju skiptir hún máli?

Leitarvélabestun (SEO) snýst um að láta vefsíðuna þína birtast ofar í leitarniðurstöðum Google þegar fólk leitar að vörum eða þjónustu eins og þinni, án þess að borga fyrir hvern smell. Hún skilar stöðugri umferð og fyrirspurnum til lengri tíma.

Við gerum úttekt á síðunni, setjum upp aðgerðaráætlun sem er uppfærð mánaðarlega og bestum síðuna einnig fyrir leitarniðurstöður gervigreindar á borð við ChatGPT, auk þess að taka Google Business prófílinn þinn í gegn.

Hvaða þjónusta er innifalin í markaðsþjónustusamningi?

Innifalið er meðal annars: uppsetning og mánaðarleg bestun á Google Ads herferðum, Facebook og Instagram auglýsingar með nákvæmri markhópagreiningu, leitarvélabestun, uppsetning á Google Analytics og mælingum (tracking), mælaborð í rauntíma sem þú færð aðgengi að, umsjón með innlendum miðlum eftir þörfum og mánaðarlegir árangursfundir þar sem allt er útskýrt á mannamáli.

Af hverju að velja markaðsstofu með Google Partner vottun?

Google Partner vottun þýðir að Google hefur staðfest að stofan uppfylli kröfur um hæfni í Google Ads, árangur herferða og fagleg vinnubrögð. Black Flamingo er ein af örfáum markaðsstofum á Íslandi með þessa vottun. Sérfræðingar okkar hafa yfir 20 ára reynslu og 95% viðskiptavina okkar halda áfram samstarfi, því árangurinn talar sínu máli.

Hentar þjónustan litlum fyrirtækjum á Íslandi?

Já, þjónustan er sérstaklega hugsuð fyrir minni og meðalstór fyrirtæki. Með föstu mánaðarverði færðu í raun heila markaðsdeild án þess að ráða dýran starfsmann, og þjónustan er sérsniðin að þínum rekstri og markmiðum eftir þarfagreiningu. Við vinnum þvert á greinar: hótel og ferðaþjónustu, verslun, verkfræðistofur og fleira.

FÁIR GERA ÞETTA VEL Á ÍSLANDI, VIÐ ERUM ÞEIRRA Á MEÐAL

Tilbúin(n) að vaxa?

Fáðu topp markaðsdeild án þess að ráða dýran starfsmann. Sendu okkur skilaboð með forminu hér að neðan, við svörum fljótt.