
Google auglýsingar birtast efst í leitarniðurstöðum og þú greiðir aðeins þegar smellt er. Kostnaður á smell ræðst af samkeppni í þínum geira, og árangurinn af því hversu vel leitarorð, auglýsingatexti og lendingarsíða passa saman.
Á meðan leitarvélabestun byggist upp yfir mánuði skila auglýsingar umferð frá fyrsta degi. Þess vegna vinna rásirnar tvær best saman, önnur heldur þér sýnilegum strax, hin lækkar kostnaðinn til lengri tíma.
Við setjum upp herferðir fyrir texta, vefborða og myndbönd, gerum leitarorða- og markhópagreiningu með tólum Google og setjum upp endurmarkaðssetningarhópa svo þú náir aftur til þeirra sem heimsóttu síðuna en keyptu ekki.
Mikilvægast er þó það sem gerist eftir uppsetninguna: við vöktum og bestum herferðirnar mánaðarlega, fylgjumst með tilboðum og fjárhæðum og færum fjármagnið þangað sem það skilar mestu. Black Flamingo er ein af örfáum markaðsstofum á Íslandi með Google Partner vottun.
Leitarauglýsingar
Auglýsingar sem birtast þegar fólk leitar að því sem þú selur, hámarksarðsemi af hverri krónu.
Endurmarkaðssetning
80-90% gesta kaupa ekki í fyrstu heimsókn. Við náum aftur til þeirra með markvissum skilaboðum.
Myndbandsauglýsingar
Herferðir á YouTube og víðar sem byggja upp vitund og þekkingu á vörumerkinu.
Vefborðar og Display
Sjónrænar auglýsingar á vefsvæðum sem þinn markhópur heimsækir.
Mælingar og tracking
Uppsetning á mælingum á sölum, bókunum og fyrirspurnum svo árangurinn sé óumdeildur.
Mánaðarleg bestun
Dagleg umsjón með reikningnum og mánaðarleg bestun á öllum herferðum.
Google auglýsingar í smáatriðum
Hvernig við vinnum með Google Ads
Hvað eru PPC auglýsingar?
PPC stendur fyrir „pay per click“, sem þýðir að þú greiðir aðeins þegar einhver smellir á auglýsinguna. Google Ads er stærsta PPC kerfið. Þar geturðu birst efst í leitarniðurstöðum þegar fólk leitar að því sem þú býður, en líka á YouTube, á öðrum vefsíðum og í Google Shopping ef þú rekur vefverslun.
Hvað kostar að auglýsa á Google?
Kostnaðurinn skiptist í tvennt. Annars vegar auglýsingaféð, sem þú greiðir beint til Google. Þú ákveður hversu hárri upphæð þú vilt verja í hverjum mánuði, og verðið á hverjum smelli ræðst í uppboði þar sem samkeppnin í þínum geira skiptir mestu. Hins vegar umsjónin hjá okkur, sem er hluti af föstu mánaðarverði.
Í þarfagreiningunni förum við yfir hvaða leitarorð skipta máli fyrir þig og hvaða auglýsingafé er raunhæft til að ná árangri, áður en nokkuð er sett í gang.
Hvernig herferðin er sett upp
Við byrjum á leitarorðagreiningu og setjum upp neikvæð leitarorð, svo þú greiðir ekki fyrir smelli frá fólki sem er að leita að einhverju öðru. Síðan skrifum við auglýsingatexta, förum yfir lendingarsíðurnar og setjum upp mælingar, svo við sjáum hvaða smellir enda sem fyrirspurnir, símtöl eða sala.
Eftir að herferðin fer í loftið fylgjumst við með henni, prófum nýja texta, stillum tilboð og færum fjármagn þangað sem það skilar mestu. Þú færð yfirlit yfir árangurinn í hverjum mánuði.
Google Partner frá 2018
Black Flamingo hefur verið Google Partner frá 2018. Til að halda vottuninni þarf stofan að uppfylla kröfur Google um vottaða sérfræðinga og árangur í herferðum viðskiptavina. Fyrir þig þýðir það að auglýsingarnar eru í höndum fólks sem þekkir kerfið vel og fylgist með breytingum á því.
Algengar spurningar
Spurt og svarað um Google auglýsingar
Hvenær borgar sig að nota Google auglýsingar frekar en leitarvélabestun?
Google auglýsingar skila umferð frá fyrsta degi og henta þegar þú þarft fyrirspurnir strax, ert að prófa nýja vöru eða vilt vera sýnilegur í kringum árstíðabundna toppa.
Leitarvélabestun er ódýrari til lengri tíma en tekur mánuði að byggjast upp. Flest fyrirtæki fá mest út úr því að reka bæði samhliða.
Hvað þarf lágmark að setja í Google auglýsingar?
Það fer eftir því hversu dýr smellurinn er í þínum geira. Í samkeppnishæfum greinum getur einn smellur kostað hundruð króna, í öðrum fáeinar krónur.
Í þarfagreiningunni skoðum við raunverulegan smellkostnað í þínum geira og segjum þér hvort fjárhæðin sem þú hefur í huga dugi til að skila mælanlegum árangri. Ef hún dugir ekki segjum við það.
Hvað er endurmarkaðssetning?
Endurmarkaðssetning eru auglýsingar sem birtast fólki sem hefur þegar heimsótt vefsíðuna þína en ekki keypt.
Þetta skiptir máli því langflestir kaupa ekki í fyrstu heimsókn. Endurmarkaðssetning nær aftur til þeirra sem sýndu áhuga, og er yfirleitt ódýrasta umferðin sem þú kaupir.
Það sem vinnur best með Google Ads

Til í fleiri smelli sem skila sölu?
Fáðu þarfagreiningu og tilboð sniðið að þínu fyrirtæki, án skuldbindingar.

