
STAÐBUNDIN SEO · GOOGLE MAPS
Staðbundin leitarvélabestun — efst í leit í þínu nágrenni
Staðbundin leitarvélabestun (local SEO) kemur fyrirtækinu þínu í kortapakkann á Google. Fyrir rekstur með starfsstöð er þetta oft verðmætasta umferðin — fólk sem leitar núna og er tilbúið að kaupa.
Staðbundin leitarvélabestun (local SEO) beinist að fyrirtækjum með starfsstöð eða skilgreint þjónustusvæði. Vinnan fer að stórum hluta fram utan vefsíðunnar sjálfrar — í Google Business prófílnum, umsögnum og upplýsingum um fyrirtækið á öðrum vefsvæðum.
Við tökum prófílinn þinn í gegn, tryggjum að upplýsingar séu réttar og fullkláraðar á tölvu, síma og spjaldtölvu, og byggjum upp rétt ytri merki og tengla. Samhliða vinnum við í umsögnum og staðbundnum leitarorðum á vefsíðunni sjálfri.
Við fylgjumst svo áfram með stöðunni og hvaðan umferðin kemur, því staðbundin leit breytist hraðar en almenn leit.
Google Business prófíll
Uppsetning, bestun og viðhald á prófílnum sem ræður stöðu þinni í kortapakkanum.
Staðbundin leitarorð
Efni og bestun sem miðar á leit með staðsetningu og kauphug.
Umsagnir
Stefna til að safna umsögnum og bregðast við þeim — stór áhrifaþáttur í staðbundinni röðun.
Ytri merki og tengill
Réttar upplýsingar um fyrirtækið á öðrum vefsvæðum sem Google treystir.
Samkeppnisgreining
Hverjir eru fyrir ofan þig í þínu nágrenni og hvað þarf til að fara fram úr þeim.
Vöktun og eftirfylgni
Stöðug vöktun á nákvæmni upplýsinga og hvaðan umferðin kemur.
Dæmi um árangur sem viðskiptavinir okkar hafa náð
Allt að 148%
aukning í lífrænni umferð
Allt að 56%
aukning í tekjum
Allt að 46%
aukning í umferð úr símum
Allt að 33%
fleiri viðskipti á netinu
Algengar spurningar
Spurt og svarað um staðbundna leitarvélabestun
Hvernig kemst fyrirtækið mitt í kortapakkann á Google?
Kortapakkinn — þessi þrjú fyrirtæki sem birtast efst með korti — ræðst ekki af vefsíðunni þinni heldur af Google Business prófílnum. Þrennt vegur þyngst: fjarlægð frá þeim sem leitar, hversu vel prófíllinn er útfylltur og umsagnir.
Þess vegna dugir venjuleg leitarvélabestun ekki ein og sér fyrir fyrirtæki með starfsstöð.
Skipta umsagnir á Google raunverulega máli?
Já, á tvo vegu. Þær hafa áhrif á röðun í staðbundnum niðurstöðum og þær hafa áhrif á hvort fólk velur þig þegar það sér listann.
Fjöldi, meðaleinkunn og hversu nýlegar þær eru vega allt inn. Fyrirtæki sem svarar umsögnum fær líka betri niðurstöður en það sem lætur þær standa ósvaraðar.
Fyrir fyrirtæki með starfsstöð

Til í að vera fyrsta nafnið sem birtist í þínu hverfi?
Fáðu þarfagreiningu og tilboð sniðið að þínu fyrirtæki — án skuldbindingar.

