
UM BLACK FLAMINGO
Markaðsstofa sem stendur með þér
Við byggjum sambönd á gagnsæi, þrautseigju, gagnkvæmu trausti og heiðarleika — við starfsfólk okkar, viðskiptavini og samstarfsaðila.
Black Flamingo Marketing er íslensk markaðsstofa sem sérhæfir sig í stafrænni markaðssetningu fyrir minni og meðalstór fyrirtæki. Sérfræðingar okkar hafa yfir 20 ára samanlagða reynslu, stofan hefur verið Google Partner síðan 2018 og 95% viðskiptavina halda áfram samstarfi milli ára.
Við vinnum þvert á greinar — hótel og ferðaþjónustu, verslun, verkfræðistofur, heilbrigðistengda þjónustu og fleira — og höfum unnið fyrir á sjöunda tug íslenskra fyrirtækja. Það sem þau eiga sameiginlegt er ekki geirinn heldur nálgunin: gagnadrifnar ákvarðanir, skýr samskipti og raunverulegur árangur.
Við elskum tölfræði. Ákvarðanir okkar byggja á gögnum, ekki tilfinningu, og við útskýrum allt á mannamáli á mánaðarlegum árangursfundum. 95% viðskiptavina okkar halda áfram samstarfi — sem er sá mælikvarði sem við erum stoltust af.
Yfir 20 ára reynsla
Samanlögð reynsla sérfræðinga okkar af íslenskum og alþjóðlegum markaði.
Google Partner vottun
Ein af örfáum markaðsstofum á Íslandi með staðfesta vottun frá Google.
100% gagnsæi
Þú sérð allt: mælaborðið, tölurnar og hvað er verið að gera fyrir peningana.
Gagnadrifin nálgun
Við tökum ákvarðanir út frá tölum, ekki bara pósti og sýnileika.
Fast mánaðarverð
Allt innifalið sem hentar þínum rekstri — engin aukagjöld.
Náin eftirfylgni
Mánaðarlegir árangursfundir og regluleg samskipti við þig og þitt starfsfólk.
60+
íslensk fyrirtæki
20+
ára samanlögð reynsla
95%
varðveisluhlutfall
100%
gagnsæi
Algengar spurningar
Spurt og svarað um markaðsstofuna okkar
Hvað gerir markaðsstofa nákvæmlega?
Markaðsstofa sér um að koma vöru eða þjónustu fyrir augu réttra viðskiptavina og mæla hvort það skilaði sér. Hjá okkur nær það yfir auglýsingar á Google og samfélagsmiðlum, leitarvélabestun, mælingar og ráðgjöf um stefnu.
Munurinn á stofum liggur sjaldan í tólunum. Hann liggur í því hvort einhver ber ábyrgð á heildarmyndinni eða hvort hver þáttur er rekinn í sínu horni.
Af hverju fast mánaðarverð en ekki tímagjald?
Tímagjald verðlaunar þann sem eyðir lengri tíma. Fast verð verðlaunar þann sem nær árangri.
Þú veist líka nákvæmlega hvað mánuðurinn kostar og þarft ekki að hika við að hringja af ótta við að reikningurinn hækki.
Hvað þýðir Google Partner vottun?
Google Partner er staðfesting frá Google um að stofan uppfylli kröfur um hæfni í Google Ads, lágmarksveltu í auglýsingum og árangur herferða.
Vottunin er endurmetin árlega. Black Flamingo er ein af örfáum markaðsstofum á Íslandi sem hefur hana.
Kynntu þér okkur betur

Viltu vinna með okkur?
Við byrjum alltaf á þarfagreiningu — engin skuldbinding, bara heiðarlegt samtal um stöðuna þína.

