ForsíðaÞjónusta › Samfélagsmiðlar

SAMFÉLAGSMIÐLAR · META

Samfélagsmiðlar sem skila viðskiptum

Samfélagsmiðlar virka þegar tvennt fer saman: efni sem byggir upp traust og auglýsingar sem koma því fyrir augu réttra manna. Við sjáum um hvort tveggja.

Facebook og Instagram ná til langflestra Íslendinga og henta nánast öllum rekstri; LinkedIn skiptir máli í B2B og TikTok þegar markhópurinn er ungur. Lífræn dreifing nær í dag aðeins til örfárra prósenta fylgjenda, svo greiddar birtingar eru forsenda þess að ná til nýrra.

Viðskiptavinir eiga í samskiptum við vörumerki í gegnum samfélagsmiðla — og þar liggja tækifæri sem fá fyrirtæki nýta til fulls. Við byggjum stefnu með skýrum markmiðum, skilgreindum markhópum og efni sem fólk staldrar við.

Á auglýsingahliðinni setjum við upp herferðir fyrir texta, vefborða og myndbönd, með súper nákvæmri markhópamiðun (targeting) í gegnum tól Meta. Við setjum upp Meta pixel og mælingar á tölfræði, bókunum, sölum eða annarri virkni sem skiptir máli fyrir þinn rekstur.

Við tengjum svo samfélagsmiðlana við heildarmyndina — þeir vinna ekki einir heldur sem hluti af markaðstrektinni, frá vitund yfir í kaupákvörðun.

Auglýsingaherferðir

Uppsetning og mánaðarleg bestun á herferðum á Facebook og Instagram.

Markhópamiðun

Nákvæm miðun út frá áhugasviði, hegðun og staðsetningu með tólum Meta.

Endurmarkaðssetning

Herferðir sem ná aftur til fólks sem hefur þegar sýnt vörunni þinni áhuga.

Umsjón með efni

Við sjáum um að skrifa, birta og eiga samskipti fyrir hönd vörumerkisins.

Uppsetning prófíla

Prófílar hannaðir og settir upp svo þeir endurspegli vörumerkið þitt.

Vöktun vörumerkis

Við fylgjumst með því hvað er sagt um fyrirtækið þitt á miðlunum.

Algengar spurningar

Spurt og svarað um samfélagsmiðla

Hvaða samfélagsmiðla ætti íslenskt fyrirtæki að nota?

Facebook og Instagram ná til langflestra Íslendinga og henta nánast öllum rekstri. LinkedIn skiptir máli ef þú selur öðrum fyrirtækjum. TikTok á við ef markhópurinn er undir þrítugu.

Ráðið er ekki að vera alls staðar. Betra er að gera vel á tveimur miðlum en illa á fimm.

Borgar sig að auglýsa á samfélagsmiðlum eða duga venjulegar færslur?

Venjulegar færslur ná í dag aðeins til örfárra prósenta þeirra sem fylgja síðunni. Ef þú vilt ná til fólks sem þekkir þig ekki þarftu að greiða fyrir birtingar.

Besta samsetningin er efni sem byggir upp traust og auglýsingar sem koma því fyrir augu réttra manna.

Hvað kosta Facebook auglýsingar á Íslandi?

Kostnaðurinn skiptist í tvennt: það sem þú greiðir Meta fyrir birtingar og það sem þú greiðir fyrir umsjón. Birtingakostnaður ræðst af samkeppni um markhópinn og því hvenær ársins er auglýst.

Umsjónin er hjá okkur hluti af föstu mánaðarverði. Sjálft auglýsingafé greiðir þú beint til Meta og velur upphæðina sjálfur.

Til í efni sem fær fólk til að stoppa og skoða?

Fáðu þarfagreiningu og tilboð sniðið að þínu fyrirtæki — án skuldbindingar.