
Vefgreining er uppsetning og túlkun á mælingum um það hvaðan umferðin kemur, hvað fólk gerir á síðunni og hvað skilar sölu. Hún er forsenda þess að hægt sé að meta hvort markaðsfé skili sér.
Við byrjum nánast alltaf hér. Áður en króna fer í auglýsingar þarf að vita hvaðan umferðin kemur, hvað fólk gerir á síðunni og hvar það hættir við.
Úttektin nær yfir vefsíðuna, herferðir sem eru í gangi og stöðuna gagnvart samkeppninni. Við finnum hvað stendur í vegi fyrir árangri og skilum tillögum um útlit, efni og aðgerðaáætlun sem styður við markmið rekstursins.
Í framhaldinu setjum við upp mælingar sem skipta máli fyrir þig — atburði (events), bókanir, ecommerce mælingar og tracking á umferð og virkni — og tengjum allt inn á mælaborð í rauntíma sem þú færð aðgang að.
Heildarúttekt
Vefsíða, herferðir og staðan gagnvart samkeppninni tekin út í heild.
Google Analytics
Uppsetning frá grunni eða lagfæring á því sem er þegar til staðar.
Mælingar á virkni
Atburðir, bókanir, sölur og fyrirspurnir mældar svo árangur sé óumdeildur.
Mælaborð í rauntíma
Allir miðlar tengdir inn á eitt mælaborð sem þú hefur aðgang að.
Samkeppnisgreining
Hvað eru keppinautarnir að gera og hvar liggja þín sóknarfæri.
Skýrslur og eftirfylgni
Fullt gagnsæi um niðurstöður og tillögur um næstu skref.
Algengar spurningar
Spurt og svarað um vefgreiningu og mælingar
Af hverju þarf að setja upp mælingar áður en byrjað er að auglýsa?
Án réttra mælinga veistu ekki hvaða auglýsing skilaði sölunni og hver brenndi peningum. Þú sérð heildartöluna en ekki hvað olli henni.
Þess vegna byrjum við nánast alltaf hér. Uppsetning á mælingum kostar lítið miðað við það sem hún sparar í rangt nýttu auglýsingafé.
Hvað er mælaborð í rauntíma?
Mælaborð er ein síða þar sem tölur úr Google Ads, Meta, Google Analytics og öðrum kerfum eru dregnar saman á einn stað.
Í stað þess að skrá þig inn í fjögur kerfi sérðu stöðuna í einni yfirsýn, uppfærða sjálfkrafa. Þú færð aðgang að þínu mælaborði og getur skoðað það hvenær sem er.
Næstu skref eftir úttektina

Til í að sjá tölurnar bak við vefinn þinn?
Fáðu þarfagreiningu og tilboð sniðið að þínu fyrirtæki — án skuldbindingar.

