
CHATGPT · NÝR MIÐILL
ChatGPT auglýsingar: nýr auglýsingamöguleiki
Það er núna hægt að auglýsa beint inni í ChatGPT, líka fyrir íslensk fyrirtæki. Auglýsingarnar birtast í samtölum við fólk sem er þegar að leita að lausn, og við setjum viðskiptavini okkar í fremstu röð á þessum nýja miðli.
ChatGPT er notað af hundruðum milljóna í hverri viku, og OpenAI hefur á árinu 2026 opnað á auglýsingar inni í spjallinu sjálfu í sífellt fleiri löndum, þar á meðal á Íslandi. Það þýðir að íslensk fyrirtæki geta núna auglýst beint inni í samtölum sem fólk á við ChatGPT.
Auglýsingarnar birtast ekki sem borði utan á síðu heldur sem hluti af svarinu sjálfu, þegar spurningin gefur tilefni til þess. Notandinn er ekki að skrolla framhjá, hann er beinlínis að spyrja um vandamál sem varan þín leysir.
Það þýðir að þeir sem ná að vera sýnilegir snemma á þessum nýja miðli fá forskot sem erfitt getur reynst að vinna upp síðar, þegar fleiri eru komnir með í leikinn og samkeppnin um athygli eykst.
Við setjum upp reikninga og fyrstu herferðir fyrir þig, skrifum auglýsingatexta sem hentar samtalsforminu og tengjum mælingar við sömu markmið og þú notar nú þegar á öðrum miðlum, hvort sem það eru heimsóknir, fyrirspurnir eða sölur.
Uppsetning á auglýsingum
Við setjum upp auglýsingareikning og fyrstu herferðir í ChatGPT fyrir þitt fyrirtæki.
Herferðarskipulag
Auglýsingatextar og efni sniðið að samtalsforminu, ekki endurunnar Google- eða Meta-auglýsingar.
Markhópamiðun
Miðun byggð á áhugasviði og samhengi fyrirspurna, með útilokunarmöguleikum þar sem því er við komið.
Mælingar
Tenging við sömu markmið og þú mælir nú þegar, hvort sem það eru heimsóknir, fyrirspurnir eða sölur.
Samþætting við aðra miðla
ChatGPT verður hluti af heildarmyndinni, ekki sér herferð sem lifir í tómarúmi.
Eftirlit með þróuninni
Við fylgjumst með útgáfum og nýjum auglýsingasniðum svo þú þurfir ekki að gera það sjálf/ur.
Svona virka ChatGPT auglýsingar
Hvernig virka auglýsingar í ChatGPT?
Hvar birtast auglýsingarnar?
Auglýsingarnar birtast fyrir neðan svar ChatGPT þegar þær tengjast því sem notandinn er að spyrja um. Þær eru merktar sem kostað efni og greinilega aðskildar frá sjálfu svarinu. Samkvæmt OpenAI hafa auglýsingar engin áhrif á svörin sem ChatGPT gefur.
Auglýsingarnar birtast notendum á ókeypis áskrift og Go áskrift. Þeir sem greiða fyrir Plus, Pro, Business eða Enterprise sjá engar auglýsingar. Þær birtast heldur ekki notendum undir 18 ára aldri eða í samtölum um viðkvæm efni eins og heilsu og stjórnmál.
Hvernig er ákveðið hvaða auglýsing birtist?
ChatGPT metur hvaða auglýsing passar best við samtalið hverju sinni. Þar skipta máli samhengi spurningarinnar, texti auglýsingarinnar, lendingarsíðan og markhópurinn sem auglýsandinn velur. Þegar fleiri auglýsingar koma til greina ræður bæði hversu vel þær eiga við og tilboð auglýsandans.
Á Íslandi og annars staðar á EES svæðinu eru persónusniðnar auglýsingar ekki í boði til að byrja með. Samhengi samtalsins ræður því mestu, og þess vegna skiptir miklu að auglýsingin og lendingarsíðan svari nákvæmlega þeirri spurningu sem fólk er að spyrja.
Hvað sér auglýsandinn?
Auglýsendur fá samantektartölur, til dæmis fjölda birtinga og smella, en hvorki samtöl, nöfn né aðrar persónuupplýsingar notenda. Þess vegna setjum við upp mælingar á lendingarsíðunni sjálfri, svo hægt sé að sjá hvað gerist eftir að fólk smellir.
Hvað kostar að auglýsa í ChatGPT?
Eins og í Google Ads ræðst verðið af samkeppni og tilboðum auglýsenda, og þú stjórnar því hversu miklu er varið. Þar sem kerfið er nýtt eru enn fáir íslenskir auglýsendur þar, sem getur gefið forskot að byrja snemma. Umsjónin hjá okkur er hluti af föstu mánaðarverði, og við förum yfir raunhæft auglýsingafé í þarfagreiningunni.
Algengar spurningar
Spurt og svarað um ChatGPT auglýsingar
Er hægt að auglýsa í ChatGPT á Íslandi núna?
Já. ChatGPT auglýsingar eru núna í boði fyrir íslensk fyrirtæki. Við setjum upp reikninginn þinn og fyrstu herferðina og sjáum um umsjón og bestun eftir það.
Er þetta eins og að auglýsa á Google?
Ekki alveg. Auglýsingarnar birtast sem hluti af svarinu sem notandinn fær, ekki sem borði eða aðskilinn hlekkur til hliðar. Það þýðir að auglýsingatextinn þarf að svara spurningunni beint, ekki bara selja.
Hentar þetta öllum fyrirtækjum?
Best hentar þetta fyrirtækjum sem selja vöru eða þjónustu sem fólk leitar virkan svars við. Síður hentar það fyrir hvatvísiskaup. Við metum með þér hvort þinn rekstur passi vel áður en við mælum með að byrja.
Hvernig er ferlið hjá ykkur?
Þú svarar stuttri þarfagreiningu, við förum yfir svörin þín og bókum þig á ókeypis fund (í eigin persónu eða á netinu) þar sem við förum yfir það sem við sjáum og hvaða þjónustuþættir henta þér best. Þaðan tökum við ákvörðun saman um samstarf, án skuldbindingar. Engin skýrsla er send fyrirfram.

Til í að verða meðal þeirra fyrstu í ChatGPT auglýsingum?
Fáðu þarfagreiningu og tilboð sniðið að þínu fyrirtæki, án skuldbindingar.

