
FRÓÐLEIKUR · GERVIGREINDARLEIT
Hvernig kemst fyrirtækið þitt í svör gervigreindarinnar?
Stutta svarið er: Gervigreindartól eins og ChatGPT, Gemini og AI Overviews hjá Google mæla með þeim fyrirtækjum sem þau telja sig „þekkja“. Þau kynnast fyrirtækinu þínu í gegnum vefsíðuna þína, umsagnir viðskiptavina, umfjöllun annarra og skýrt efni sem svarar spurningum viðskiptavina. Þetta kallast GEO (Generative Engine Optimization), eða gervigreindarleit, og byggir á sömu grunnstoðum og góð leitarvélabestun.
Af hverju skiptir þetta máli núna?
Fólk spyr ekki lengur bara Google. Það spyr ChatGPT „hvaða pípari í Reykjavík er góður?“ eða „hvaða hótel á Vesturlandi er með heitar laugar?“ og fær eitt svar með tveimur til þremur nöfnum. Ef fyrirtækið þitt er ekki eitt þeirra er óhætt að segja að þú sért ekki inni í myndinni.
Á sama tíma fækkar smellum á Google þegar gervigreindarsamantekt (AI Overview) birtist efst. Rannsókn sem Search Engine Journal fjallaði um í apríl 2026 fylgdist með 1.065 notendum í Bandaríkjunum í tvær vikur. Samantektirnar fækkuðu smellum á lífrænar leitarniðurstöður um 38% í leitum þar sem þær birtust.
Rannsókn Seer Interactive frá 2026 sýnir að það skiptir samt miklu máli að vera nefndur í samantektinni. Síður sem vitnað er í fá um 2,1% smellhlutfall en síður sem ekki er vitnað í fá um 0,9%, sem er meira en tvöfalt hærra smellhlutfall. Báðir hóparnir fá þó færri smelli en þegar engin gervigreindarsamantekt birtist, en þá er smellhlutfallið um 3,3%. Að vera nefndur skiptir máli, en það bætir ekki upp allt tapið.
Íslensk fyrirtæki eru þegar farin að taka við sér. Samkvæmt Hagstofu Íslands (mars 2026) nota 46% þeirra tól eins og ChatGPT, en aðeins 14% hafa mótað sér stefnu um gervigreindina. Líklega notar þitt fyrirtæki líka gervigreind í daglegum rekstri. Spurningin er hvort gervigreindin „noti“ fyrirtækið þitt.
Við prófuðum þetta sjálf
Þann 19. nóvember 2026 spurðum við Google, ChatGPT og Gemini sömu tíu spurninganna. Þær sneru að pípurum, tannlæknum, veitingastöðum og fleiri þjónustum á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Vesturlandi. Spurningarnar voru orðaðar eins og viðskiptavinur myndi orða þær. Svo dæmi sé tekið: „Hvaða bifreiðaverkstæði í Kópavogi er opið í dag?“. Við skráðum hvaða fyrirtæki tólin nefndu og hvaða heimildir þau sýndu. Vert er þó að taka fram að þetta var lítil prófun sem var keyrð einu sinni og sýnir því einungis niðurstöður þessa tiltekna dags.
Svona komu niðurstöðurnar út:
| Tól | Svör | Fyrirtæki nefnd í hverju svari | Heimildir sýndar |
|---|---|---|---|
| Google (gervigreindarsamantekt) | 10 af 10 | 3 til 7 | Já, í öllum svörum |
| ChatGPT | 10 af 10 | 3 til 6 | Stundum; einkunnir og fjöldi umsagna oft sýndar |
| Gemini | 8 af 10 | 3 til 7 | Nei |
Helstu niðurstöðurnar:
- Tólin nefndu ekki sömu fyrirtækin. Google og ChatGPT nefndu að minnsta kosti eitt sameiginlegt fyrirtæki í níu spurningum af tíu. Gemini deildi nafni með Google í fimm af þeim átta spurningum sem það svaraði. Í átta spurningum svöruðu öll þrjú tólin og í fjórum þeirra nefndu þau sama fyrirtækið. Þegar spurt var hvað það kostar að láta mála íbúð nefndu þau öll mismunandi fyrirtæki.
- Gemini sýndi minnst af því hvaðan upplýsingarnar komu. Það sýndi hvorki heimildir né einkunnir, og nokkur nöfn í svörum þess fundum við hvergi hjá hinum tólunum. Við höfum ekki athugað hvort þau fyrirtæki séu til. Í tveimur spurningum fékkst ekkert svar þrátt fyrir endurteknar tilraunir.
- Upplýsingarnar voru ekki alltaf réttar eða samhljóða. Eitt tól sagði að dekkjaverkstæði tæki við tímapöntunum á netinu, en tvö önnur sögðu að svo væri ekki, og Google vitnaði í vefsíðu verkstæðisins sjálfs. Sömu tannlæknastofunni var lýst sem neyðarþjónustu í einu tóli en sem stofu sem tæki alltaf við nýjum sjúklingum í öðru.
Af þessu drögum við tvær niðurstöður. Fyrirtæki sem er nefnt í einu tóli er ekki endilega nefnt í öðru, og því borgar sig að vera sýnilegur á eins mörgum stöðum og hægt er til að auka líkurnar á því að vera þar sem tólin sækja upplýsingar í: á eigin vefsíðu, í Google Business Profile, á bókunarsíðum og í umsögnum. Svo er einnig gott að athuga reglulega hvernig gervigreindin lýsir fyrirtækinu þínu, því lýsingin getur verið röng.
Hvað ræður því hverjum gervigreindin mælir með?
- Vefsíðan þín þarf að vera aðgengileg. Ef leitarvélar og vélmenni gervigreindarinnar geta ekki lesið hana getur gervigreindin ekki notað efnið þitt. Google notar sitt eigið vélmenni, Googlebot, en OpenAI notar önnur: OAI-SearchBot finnur vefsíður fyrir leit í ChatGPT og ChatGPT-User sækir síður þegar notandi spyr spurningar. Mikilvægt er að passa að robots.txt skráin loki ekki á þau og einnig að mikilvægt efni sé í textaformi, ekki bara í myndum.
- Aðrir þurfa að tala um þig. Umsagnir, fjölmiðlaumfjöllun, skráningar á íslenskum og erlendum heimasíðum og umræða á samfélagsmiðlum. Gervigreindin horfir á það sem aðrir segja um þig, ekki bara það sem þú segir sjálfur, og treystir því sem margir staðfesta. Fyrir fyrirtæki sem þjóna fólki á tilteknu svæði skipta umsagnir og Google Business Profile gríðarlega miklu máli. Við förum nánar í það á síðunni okkar um staðbundna leitarvélabestun.
- Efnið þarf að svara spurningum beint. Gervigreind dregur út stutta, skýra kafla. Því skaltu láta svarið koma fram fremst í textanum og skýringuna á eftir. Notaðu fyrirsagnir sem eru orðaðar eins og spurningar viðskiptavina og byrjaðu hvern kafla á svari í 40 til 60 orðum. Tölur og dæmi hjálpa líka: skrifaðu frekar „við sendum innan 24 klukkustunda á höfuðborgarsvæðinu“ í stað þess að skrifa „hröð afgreiðsla pantana“.
- Upplýsingarnar þurfa að vera samræmdar. Sama nafn, heimilisfang, símanúmer og lýsing alls staðar: á vefsíðunni, í Google, á Facebook og á Já.is. Ósamræmi gerir gervigreindinni erfiðara fyrir að vera viss um að um sama fyrirtæki sé að ræða.
Þurfum við að gera eitthvað sérstakt fyrir hvert tól?
Almennt ekki. Google segir sjálft að ekki þurfi að uppfylla neinar sérstakar kröfur eða beita sérstakri bestun til að birtast í AI Overviews, hefðbundin leitarvélabestun gildir. ChatGPT og Perplexity vitna í ólíkar síður, en öll tólin verðlauna það sama: traust, skýrleika og gott umtal. Það borgar sig því að byggja á traustum grunni frekar en að elta hvert nýtt tól.
Svona prófar þú stöðuna sjálfur
Byrjaðu á spurningum sem viðskiptavinur myndi í raun skrifa, ekki á nafni fyrirtækisins þíns. Dæmi: „hvaða tannlæknir í Reykjavík tekur við nýjum sjúklingum?“, „hver er besti rafvirkinn á Akureyri?“ eða „hvað kostar að láta mála íbúð á höfuðborgarsvæðinu?“. Spyrðu sömu spurningar í ChatGPT, Gemini og Google og skráðu hver er nefndur, hvaða síður er vitnað í og hvort upplýsingarnar um fyrirtækin séu réttar. Þú færð skýrari mynd ef þú spyrð líka á ensku, því ferðamenn og erlendir viðskiptavinir gera það.
Endurtaktu prófið eftir nokkrar vikur. Svör gervigreindar breytast frá degi til dags og milli notenda, þannig að þróunin segir meira en eitt einstakt svar.
Fyrstu þrjú skrefin
- Spurðu ChatGPT, Gemini og Google 10 spurninga sem viðskiptavinir þínir myndu spyrja og skráðu hver er nefndur.
- Farðu yfir Google Business Profile og passaðu að allt sé rétt og fullklárað: flokkun, opnunartímar, lýsing á þjónustu, nýlegar myndir og svör við algengum spurningum.
- Skrifaðu eða uppfærðu eina síðu sem svarar algengustu spurningunni í þínum geira, með skýru svari efst.

Höfundur
Oliver Darrason
Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu
Oliver lauk BS í viðskiptafræði og meistaranámi í Digital Marketing í Barcelona. Hann starfaði sem Account Strategist hjá Google Ads og síðar í Partners teyminu hjá Google, þar sem hann vann með stærstu viðskiptavinum og markaðsstofunum. Nánar um teymið
Heimildir
- Search Engine Journal: AI Overviews cut organic clicks 38% (apríl 2026)
- Search Engine Land: AI Overviews CTR recovery study (Seer Interactive)
- Google Search Central: AI features and your website (uppfært desember 2025)
- Hagstofa Íslands: Widespread use of AI among enterprises (mars 2026)
- OpenAI: Overview of OpenAI crawlers

Viltu vita hvar fyrirtækið þitt stendur?
Við spyrjum ChatGPT, Gemini og Google spurninga sem viðskiptavinir þínir myndu spyrja og sýnum þér hverjir eru nefndir, hverjir ekki og hvað er hægt að gera í því.
